Aðalvalmynd

Prófíll

27. febrúarAnna Lóa Svansdóttir

Jæja núna eru tvær vikur síðan ég bloggaði síðast, hehe.. og ég er nú eiginlega ekki að nenna því.. er agalega sybbinn.. hihi..

Vildi bara segja að það er allt gott að frétta af mér og mér hefur tekist að fá engann nýjan marblett núna í held ég alveg heila viku :) ..hehe.. en ég hef verið frekar dugleg við það að gera einhvern skandal og næla mér í marbletti í tugatali síðustu vikur, hehe. Eins og um daginn þá var ég eitthvað að röfla í Gumma hvort hann myndi ekki grípa mig ef ég kæmi hoppandi á hann og hann misskildi mig eitthvað og ég hljóp til hans á skrilljón og hoppaði til hans og þá kom hann svona út með bringuna og dúndraði mér í gólfið. Svona eftir á, þá var þetta kannski soldið fyndið, hehe. En ég fékk þessa þrusu kúlu og huges marblett á annan olnbogann og var að sálast í honum allan næsta dag, hehe.
Og svo var ég um daginn að labba með fullt fangið af samlokum á diskum niður stigann sem Helga var nýbúin að skúra og ég garga á eftir Isidor að hann verði nú að passa sig og svo flýg ég svona skemmtilega sjálf á hausinn. Missi auðvitað samlokurnar í gólfið og allt útum allt og ég fór á bossanum niður allan stigann. Ég notaði svo hendurnar til að reyna að bjarga mér og skar lófann og puttana alla í tætlur og fékk þennan hjúmangus marblett á rassinn. Hahahaha.
Ég labbaði inn í eldhús, eldrauð í framan því ég skammaðist mín svo og þá fékk Isidor næstum hjartaáfall því hægri höndin á mér var öll í blóði. Fólkið hérna hefur agalegar áhyggjur alltaf af manni, hehe.

Ég og Sunna erum í fríi í dag og það var ekki sjéns að ég hefði getað vaknað í morgun til að fara á bretti, ég var alltof þreytt. Reyndar ákvað Sunna að vekja okkur öll með því að hoppa á okkur og öskra "ástarkúlan mín", hahahaha.. það var svo of fyndið.. svo ætlaði ég að fara á fætur kl.9.30 en það var bara ekki sjéns.. en ég kom mér svo stuttu seinna á fætur og skellti mér upp í fjall á bretti. Ég er orðin soldið góð, hehe, allavegna mun betri en þegar ég fór fyrst. Það er búið að snjóa svo mikið síðustu daga að það er rosalega mikill snjór í fjallinu og allt í hólum svo ég fór stökkvandi niður brekkurnar og datt bara einu sinni en það var þegar ég renndi mér ofan í holu, hehe. Svo keyrði ég reyndar á konu, hahaha, úff ég skammaðist mín svo, hihi.

Það hefur annars mikið gerst síðan ég bloggaði síðast en ég svona eiginlega nenni ekki að blogga um það.. ég veit ekki hvað varð eiginlega um þennan bloggfýling sem ég hafði einu sinni í mér.. ég er alltaf með þessa hugsun í mér, ég verð að fara að blogga en svo um leið og ég er komin með tölvuna í fangið þá nenni ég því ekki.. hahaha.. er til dæmis núna að spá í að leggja mig aðeins.. það tekur soldið á að fara á bretti (",)

Ísidor sagði við mig í dag að Sunna væri eins og engill og þegar ég spurði hann hvað honum fyndist þá um mig hvort ég væri djöfullinn og þá kom þessi góði svipur á hann og sagði já veistu Anna Lóa, you are a dangerous girl, mwahahahaha.

Við komumst að því í gær að það er íslensk stelpa hérna sem vinnur í Huben sem er bær hérna nálægt og hún er á svipuðum aldri og við og leiðist alveg allsvakalega, því hún er alltaf alein.. svo við buðum henni með okkur á djammið í gær og það var bara rosa gaman.. :D ..

Anywho þá ætla ég að hætta núna og er búin að taka lykilorðið af síðunni minni, en ég setti það bara á til að gera smá tilraun á einni manneskju og þar sem þessi manneskja gerði bara alveg eins og ég bjóst við þá þarf þetta lykilorð ekkert að vera lengur á..

En ég setti inn svona eiginlegt blogg um bolludaginn slash öskudaginn hérna til hliðar með myndum og alles (",) ..

Anna Lóa djöfull, múhahaha

VúhjúúúúAnna Lóa Svansdóttir

Hæ elskurnar mínar. Ég býst við að þetta verði alveg ágætis blogg þannig að hahaha, þið bara lesið ef þið nennið.

En það hefur margt og mikið gerst síðan ég bloggaði síðast almennilega sem var hvað, í desember. Mwahahahaha.

En núna ligg ég upp í rúmi og er að reyna að láta fara vel um mig og hlusta á gæða þýskt Hip Hop. Agalega verður maður komin með alþjóðlegan tónlistarsmekk þegar maður loxins hunskar sér til Íslands. Ég ætla sko að koma öllum inn í þessa gæða tónlist sem ég er búin að koma mér inn í, mwahahaha. Ég meina hver fýlar ekki þýskt Hip Hop eða þýska Hvanndalsbræður? Tjaaa, það geri ég allavegna. hahahaha.

Ein aðalfréttin sem er að frétta hjá mér svona fyrir utan það að ég átti afmæli á fimmtudaginn er að ég keypti mér bretti svona í tilefni afmælissins. En þar sem Matti kallinn (yfirmaður minn) vildi ekki leyfa mér að fara úr vinnu til að fara í bankann þá var hann Hreiðar minn svo yndislegur að lána mér fyrir því. Hehe. En ég var einsog fimm ára krakki þegar ég kom heim með nýja brettið mitt og var mikið að spá í að sofa bara með það í fanginu, hehe.


En yfir í "allt" annað, þá er ég í fríi í dag og vaknaði svona til tilbreytingar (já eða ekki) kl.7 í morgun því ég ætlaði sko að fara á bretti. En svo leit ég út um gluggan og þá var þessi fallega (not) snjókoma úti. Maður sá ekki nokkra metra upp í fjall. Þannig að ég ákvað samt að fara á fætur en tölti bara í búðina og keypti mér dýrindis morgunmat og spjallaði við nýju bestu vinkonu mína sem vinnur í SPAR. Hún er algjör yndi, verð einhvern tímann að segja ykkur almennilega frá henni. En kom svo heim og ákvað að fara á bretti og fara þá bara frekar aftur heim. Var sko ekki að týma því að eiga frídag og fara ekki upp í fjall á fallega brettinu mínu, hahaha.

Þannig að ég fór upp í fjall í morgun og skemmti mér svona konunglega. Færið var geðveikt, búið að snjóa í tvo eða þrjá daga svo það var allt á kafi en reyndar var allt í hólum svo mín var bara stökkvandi um allt eins og pro. Hahahaha. Var samt agalega stollt af mér að detta aldrei og var einmitt að hugsa það þegar ég var að fara niður eina ferðina og þá lendi ég akkúrat á þessum hjúmangus stökkpalli og stekk eitthvað lengst í rassgat en af einhverjum ótrúlegum ástæðum þá lenti ég á brettinu og stóð í fæturnar, vúhjú.
Reyndar skammaðist ég mín agalega þegar ég var að fara upp í eitt skiptið, þá var ég sko ein með manni í lyftunni og maðurinn leit btw út alveg eins og Siggi Bjarklind, hahaha. Og mín var eitthvað smekkleg að sjúga upp í nefið þar sem ég er að kafna úr kvefi þessa daganna og hann horfir svona á mig, með ágætis hneykslunarsvip, fer svo ofan í vasann og kemur hann ekki með bréf upp úr vasanum og réttir mér. Hahahahaha. Ég var ekki alveg að vita hvernig ég ætti að vera en ákvað nú að vera ekki dónaleg og snýtti mér bara allhressilega í bréfið og sagði danke schön og brosti agalega fallega, hahahahaha.


Þó að færið hafið verið gott þá var veðrið allt annað en gott


Kata finnst þér again vinstri löppin mín var í ruglinu :)


Mín asskoti nálægt því að vera bara að snjóa í kaf =)


Eins og það sést hérna þá var skyggnið ekkert rosa gott en brekkan full af fólki og það er einsog maurar hérna útum allt, hehe


Og enn og aftur yfir í eitthvað allt annað þá hélt ég upp á afmælið mitt á fimmtudaginn. Það var algjör snilld. Við hittumst fyrst svona flest heima hjá mér og Sunnu þar sem var aðeins fengið sér í aðra tána af bollunni sem ég bjó til og svo var haldið á Salinos. Þar sem við vorum 18 saman og átum eins og svín. Agalega gaman sko. Sunna skemmti sér konunglega þegar ég og Helga fórum að syngja Ljúfa Anna því hún hafði víst aldrei heyrt jafn falskan söng, Takk Sunna mín. Og svo var sungið fyrir mig afmælissönginn. Algjör snilld. Eftir að fólk var búið að éta eins og svínum er einum lagið þá var haldið again heim til mín og Sunnu og fengið sér aðeins í hinar tærnar líka. Thomas og Katrin (held ég að hún heiti, allavegna Frau-in hans) komu eftir mikið tuð í okkur og við gáfum Thomas afmælisgjöfina hans, sem var íslenskt nammi og harðfiskur. Hann var nú bara helvíti ánægður með það, hehe. En ekki var hann jafn ánægður með Tópas-ið (drykkinn) sem ég gaf honum en konan hans var sko alveg að fíla hann, hehe.
Flestir stoppuðu nú ekki lengi í seinna skiptið hjá mér og Sunnu heldur var farið á Fire & Ice þar sem við létum eins og bjánar til alltof seint.
Þetta var svo bara snilldar afmælisdagur. Ég fór nú bara snemma á fætur og fór í búðina eins og vanalega á frídögum og svo fóru ég og Sunna upp í fjall og fengum þetta geðveika veður. Ohh, það var svo geðveikt gaman, en þar sem vinur hans Atla var að koma í heimsókn til hans frá Íslandi þá fórum við og sóttum hann niður í bæ. Hanna Rós og Sunna entust nú eitthvað stutt upp í fjalli svo ég var bara með Hirti (hmm, Hjörtur) agalega gaman.

Ohh, ég nenni ekki að blogga lengur. Hahahaha. Orðið líka alltof langt.. er að spá í að ljúka þessu bara með punktum :
Ég ætla að enda þetta blogg á því að rífa mig aðeins. Það er sem sagt þannig að ef það gerist eitthvað í þessum Mitarbeiterhaus þá er alltaf talað fyrst við okkur Íslendingana. Til dæmis þá var hent ryksugu útum gluggan á 5tu hæð og auðvitað beint talað við okkur og sama kvöld og greyið ryksugan fékk að fjúka útum gluggan þá var kvartað undan hávaða og hvað haldiðið nú það var auðvitað við Íslendingarnir. Þetta kvöld sem var verið að tala um þá ákváðu við að vera öll bara heim og vera róleg og það voru lang flestir sofanaðir fyrir klukkan 22.

Svo var sem sagt tekið flesta Íslendingana á teppið um daginn útaf því að það var verið að kvarta undan hávaða sem átti víst að hafa verið á föstudaginn. Og það brotnaði víst ljós á ganginu sem við erum btw ekki búin að finna ennþá, hehe. En ég get alveg sagt ykkur það að á föstudaginn þá voru við öll svo þunn eða þreytt eftir fimmtudaginn að við fórum ÖLL snemma að sofa, sumir meira segja fyrir klukkan 19...! Og það er búið að segja við okkur að ef það verður kvartað einu sinni enn yfir okkur þá verður okkur hent út úr þessu Mitarbeiterhaus...! Ég er svo brjáluð, ég veit að við erum stundum með læti en mjög sjaldan eftir kl.22 því það á að vera þögn eftir það og þá erum við nú farin út. En það er aldrei kvartað undan okkur ÞEGAR við erum með læti heldur þegar við erum eins og englar.
Og mér finnst bara bölvaður dónaskapur og fordómar að tala alltaf fyrst við okkur. Þó þetta sé ekki einu sinni á hæðinni okkar eða á ganginum okkar. Alveg ömurlegt.
Við erum búin að ákveða að það verður hópuppsögn ef þau ætla að halda áfram að láta svona við okkur. Við þurfum að vinna í tvær vikur ef við segjum upp svo þetta verður kannski aldrei 8 vikur sem við verðum hérna, hmmmm..

En núna fer ég bara í vont skap, hehe. Svo ég er að spá í að blasta bara græjurnar og fara kannski að taka aðeins til. Eða kannski leggja mig og njóta þess að vera í fríi, vúhjúúúú.

Anna Lóa Leberknödeldrottning með meiru

p.s. ég ætla að setja inn svona myndasíðu hérna til hliðar með myndum frá afmælinu, vúhjúúúú :)

8. febrúar, vúhjúAnna Lóa Svansdóttir

Ég veit að klukkan er ekki tólf á Íslandi en hér er klukkan orðin tólf sem þýðir að ég er orðin agalega gömul.
Þetta gengur ekki sko.

Ég lofa að koma með myndir og agalegt blogg eftir morgundaginn sem verður ruuusalegur :)

Anna Lóa, sem er gömul kona að drekka rauðvín as we speak


Binna, ég og Sunna :) ..elskurnar mínar sko :)

p.s. ég fékk agalega heimþrá í dag, segi ykkur seinna warum....

Hva, mín bara á netinu, vúhjúúúAnna Lóa Svansdóttir

Sælar elskurnar mínar. Þá er ég komin á netið. Hahahaha. Hmmm. Agalega fyndið að maður fái bæði sms og hringingar til að athuga hvort það sé ekki alveg örugglega allt í lagi með mann þar sem maður er ekki á netinu og bloggar aldrei.

En ég er sem sagt á lífi og er í góðum gír núna. Var það reyndar ekki avleg heillengi því ég ætlaði bara aldrei að hætta að vera veik. Ég, gamla þrjósk sko, fór alltaf í vinnuna aftur og var bara sagt að hunskast heim. Læknirinn minn skammaði mig allsvakalega fyrir að vera svona þrjósk og sagði : núna ferðu ekki í vinnuna næstu tvo daga og þú verður HEIMA hjá þér. Hahahaha. En það er sem sagt málið hérna að ef maður er veikur úr vinnu þá á maður að fara til læknis, sem mér finnst frekar heimskulegt því þegar ég er veik þá vil ég bara vera heima og ná þessu úr mér en ekki labba eitthvað í rassgat til að fara til læknis. En nýtt land nýjar reglur. Reyndar sagði Thomas (sem er agalega fyndin gaur sem vinnur með okkur) að við íslendingar værum bjánar að fara aldrei til læknis þegar við erum með kvef og hita og svona. Og spurði okkur agalega kurteislega hvort við vissum ekki að við getum dáið við það að fá hita. Bjánar. Ég veit alveg að það er hægt að drepast úr hita (mwahahaha) en það er nú ekki fyrr en þegar maður er komin helvíti mikið yfir 40°C.

En annars var ég að éta töflur og spreyja í mig astmalyfi of lengi og var hætt að geta borðað. Borðaði reyndar ekkert í heila viku og loxins þegar mér var farið að líða betur þá gat ég borðað en 20min seinna var ég rokin inn á bað og ældi öllu. Fjör? Neibb. Vaknaði of marga morgna eftir það þvílíkt óglatt. Ég tók þá ákvörðun að þetta væru aukaverkanir af þessum skrilljón lyfjum sem ég var komin á og neitaði að taka lyfin mín. Ekki við mikin fögnuð frú Sunnu og fleiri, en ég stóð á minni þrjósku og þegar ég hafði ekki tekið lyfin í tvo daga var þetta hætt og ég farin að geta étið almennilega. Vúhjúúú. Svo eina sem ég tók í nokkra daga var hóstasaftið sem bragaðist svona skemmtilega eins og skítur. Ég og Sunna vorum að borða um daginn og hún sagði : Anna Lóa, þetta hóstasaft þitt er að drepa mig, það er ógeðsleg lykt af því. Þá ákvað ég að viðurkenna að ég hafi nú barasta verið að ropa, nýbúin að taka lyfin mín. Smekkleg takk fyrir. Mwahahaha.

En já, hættum að tala um lyfin mín, þau eru nú ekkert skemmtileg. Þó svo að sjúkrasagan mín í Sölden sé nú anskoti lengri. En ég ætla ekkert að hræða ykkur of mikið. Núna hósta ég bara stundum og hrýt víst svona skemmtilega með þetta kvef mitt. Jei. Skemmtilegur herbergisfélagi sem ég get verið. Hver vill ekki búa með mér :D

En jamm. Ég og Sunna skelltum okkur í sund í Längefeld um daginn. Og það var æði. Agalega stór sundlaug. En ég verð nú eitthvað að fara að troða í austurríkismenn og fleiri að það er ekki kúl að vera með sameiginlega klefa. Einn gaurinn sá mig svona skemmtilega bera að ofan þegar ég missti handklæðið mitt og ég hélt að hann myndi snúa sig úr hálslið og vá hvað konan hans var ekki sátt. Mwahahahaha. En það var agalega sætur loðfíll sem var fyrir utan sundlaugina



Aníveis. Næsta frídag notuðum við til að fara til Innsbruck. Tókum rútu frá Sölden og til Ötz (eða réttara sagt Ötztal Bahnhof) og þaðan tókum við lest til Innsbruck. Og þar sjoppuðum við alveg heilan helling. Víí. Voða gaman hjá okkur. Var reyndar agalega fyndið þegar við ætluðum að fara heim þá vorum við á lestarstöðinni og ég sagði : okei, lestin fer kl.16.52 ..og svo fórum við bara í bakarí og vorum eitthvað að spjalla og ég sagði svo : jæja sunna, við skulum drífa okkur lestin fer eftir 6 min. Og þá var kl.16.52 og þá tókst mér að gleyma hvenær lestin færi og hélt að það væri kl.16.58 svo þegar við komum á brautarpallinn þá var lestin okkar að sigla sinn veg í burtu. Jei. Þannig að við tók klst bið á lestarstöðinni. Hahahaha. Bara því Anna Lóa kann ekki á klukku.

En í dag vorum við líka í fríi, eða erum reyndar alveg ennþá í fríi. Og ég ákvað að leigja mér bretti en Sunna skíði. Og við vorum eins og bjánar upp í fjalli í fimm tíma. Sunna fékk sinn skammt af því að hlægja af mér í dag því ég var aðeins oft á hausnum. Mwahahaha. Reyndar var ég verst þegar ég var að fara í lyftuna og úr henni. Að renna mér niður brekkurnar var ekkert mál, en lyfturnar voru asskoti mikið vesen. Haha. En ég er enn í heilu lagi, bara með hné á stærð við melónur og ansi marinn rass. En miðað við hvað það var gaman hjá okkur þá skiptir það engu máli. Á morgun er svo nightski í hinni lyftunni hérna í Sölden og ég ákvað að hafa brettið bara einum degi lengur og skella mér með krökkunum. Það var það gaman hjá mér í dag að ég er að spá í að gefa sjálfri mér bretti í afmælisgjöf. Nohhh. Lúxus á minni sko. Þannig að ég verð agalega góð á bretti þegar ég kem heim, vúhjúúú.


Giggijoch var agalega flottur í dag.


Ég á hausnum :) mwahahaha


Ef þessi staður er ekki algjör draumur


Sunna að gera sig í brekkunum, mwahaha

Hmmm, hvað get ég meira sagt ykkur? .....Ég er enn edrú..vúhjúú.. Og verð það í 8 daga í viðbót. Veit samt ekki hvort ég eigi eftir að týma að byrja að drekka. Þetta gengur svo agalega vel hjá mér. Hehe. Tók reyndar eftir því að ef ég vil þá þarf ég ekki að eyða neinum pening hérna. Ég eyddi ekki krónu í heila viku núna. Fór samt út og allt. Hmmm. Gott að eiga alltaf mat í ískápnum og halda bara ristað brauðs partý á morgnanna, hahaha. Þið skiljið örugglega ekkert hvað ég er að tala um, mwahahahaha.

Ég og Sunna látum enn eins og hálfvitar í vinnunni. Enda held ég að flestir hafi saknað okkar í dag. Hahahaha. Ég og Júlía erum búin að skýra vélina sem ég nota til að skera kjötið fyrir samlokurnar sem ég smyr á morgnanna en hún heitir Baldvin Omas og svo er vél sem sker gúrkur og hún heitir Róbert. Günter karlinn sem er einn mest grömpí gaur sem ég hef kynnst, hann er sko þrítugur og brosir agalega sjaldan er farin að hlægja af okkur. Hann sagði við mig um daginn : Anna, I'm done using Baldvin so you can use him now. Hahaha. Vá hvað ég dó úr hlátri. Og svo bað hann okkur vinsamlegast að skýra frönskupottinn hans og ég ákvað að það væri Frímann. Hahahaha.

Svo um daginn var ég að láta eins og fífl og teiknaði akkeri á hattinn minn og sneri honum á hlið en ekki framm og aftur, og hann var alveg að gera góða hluti. Hahaha.


Bangsinn minn sæti með hattinn minn :)

Jæja. Get ég sagt ykkur eitthvað meira. Hmmmmm.

Matthías elskan gaf mér lyklakippu um daginn. Veit ekki alveg afhverju en hún er agalega sæt.
Isidor bestaskinn eldaði grjónagraut handa okkur í dag þar sem það voru blóð- og lifrapylsur í matinn. Leit pinu út eins og slátur en ég lagði nú ekki í að smakka þetta. Hell nó sko.
Isidor var agalegur í vinnunni í gær. Hahaha. Við vorum í hláturskasti allan daginn. Ætla nú ekkert að vera að nefna hvað karlperrinn var að segja og gera. En hann sagði svo við mig að hann kynni örugglega öll verstu orðin í íslensku og ég sagði, veistu nei. Og skellti orðinu drullutussa í hann. Kannski ekki sniðugt að kenna 56 ára gömlum skarfi að segja drullutussu en stelpurnar mönuðu mig í það. Hahahaha.

Það var brjálað veður um daginn og meira segja kláfnum upp á Giggijoch var lokað. Svo það var enginn upp í fjalli. Ég seldi allan daginn eina súpu og tvö spaghettí og eitt Kaiserschmarren. Enda var Giggijoch svo finally lokað kl.14 og við farin heim klukkutíma seinna. Það var agalega næs. Og í kringum þann dag þá var -15°C til -20°C alla daga. Það var mjög erfitt. Ég fíla ekki þennan kulda en þetta á víst eftir að versna, sjææææsa.

Ég er á fullu að hlusta á eina þýska hljómsveit núna. Þetta er eitthvað það fyndnasta sem ég hef heyrt á ævinni. Eitt lagið er um gaur sem er að segja frá kærustunni sinni sem sprakk og svo er viðlagið við annað lag : Ich will sterben. Mwahhahahaha. Agalega fyndið sko. Sterben = drepast. Svo er eitt lagið agalega happý song, maður fer alveg í gírinn við að hlusta á þetta, hahahahaha.


Agalega myndarlegir gaurar :)

Vá, núna held ég að þetta sé orðið gott. Vildi bara segja ykkur að ég er á lífi og ég mun koma með annað blogg á næstunni, but only if I get komments on this one:) hihi..

Anna Lóa sem var agalega á bretti í dag og keyrði næstum á krakka sem voru í skíðakennslu, hahahaha.

17. janúarAnna Lóa Svansdóttir

Hæhæ. Ég er búin að vera svona skemmtilega veik síðan á sunnudaginn. Eða eiginlega laugardaginn því þá leist Ísidori nú ekkert á blikuna og sendi mig heim. En svo á mánudaginn var ég orðin góð en ákvað að vera heima einn dag í viðbót til að ná þessu úr mér og svo vorum við Sunna í fríi í gær og ég reyndi nú að taka því rólega.

Svo ég morgun vaknaði ég til að fara í vinnuna og gott mál það. Var komin með mjög ljótan hósta. En ákvað að skella mér samt í vinnuna. Svo hóstaði ég eins og mófó í vinnunni og var komin í brjálað skap. Júlía ekki alveg sátt með þetta og fór og talaði við Ísidor og hann kom til mín og sagði : Anna Lóa, farðu heim!!!! ..ég sagðist ekki vilja fara heim.. og hann tók það nú ekki í mál og sagði mér að hunskast heim. Þannig að eftir smá tuð þá gaf ég mig og hunskaðist heim. Ákvað að fara bara beint til læknis til að fá eitthvað við þessu helvíti. Biðtími var bara stuttur núna miðað við á sunnudaginn eða aðeins 55min. Á þeim tíma tókst mér 3x að sofna og renna næstum úr stólnum og á gólfið.

En læknirinn leit upp í mig og það kom mjög andvarpslegt úff út úr karlinum. Ekki alveg sáttur með það sem hann sá. Svo hlustaði hann á mig anda og sagði mér að lungun á mér ættu að belgjast svoooona út (voða flottar hreyfingar hjá honum) en mín héldu sig bara í einu krulli og þess vegna gæti ég ekki andað og fengi bara hósta. Hann skrifaði lyfseðil fyrir mig upp á Astmalyf og sagði að ég yrði að hætta að umgangast fólk sem er að reykja í nokkra daga, sem þýðir að ég verði bara ein inn á herbergi að sjúga astma-pústið mitt. Jei. Parteeeeeiiiii.

Svo núna er ég alveg brjáluð í skapinu og ætla að hypja mig inn í rúm og vera þar þangað til elskan mín hún Sunna kemur heim.

Ég er með símann minn ef einhverjum leiðist og hugsar til mín :)

Anna Lóa lasílíus



p.s. endilega skoðið myndirnar sem ég sætti hérna við hliðina á : http://annaloa.bloggar.is/sida/32356/

Jæja krakkarAnna Lóa Svansdóttir

Jæja elskurnar mínar, ætti ég kannski að unga út úr mér einu bloggi? Tjaaaaa.. hafiði eitthvað gott af því að fá blogg frá mér?

Ég veit að það er asskoti langt síðan ég bloggaði síðast og það er eins og Hafdís sagði ekki af því að ég nennti því ekki heldur vegna þess að netið dó. En núna er það komið aftur og vonandi alveg. Víí.

Það er alltof mikið að frétta síðan ég bloggaði síðast. Þið getið bara hunskast til að senda mér tölvupóst eða já bara hringja í mig ef ykkur langar að vita. Ég er alltaf game í spjall. Hehe.

Er ekki alveg að nenna að unga út úr mér bloggi núna. Hehe. En ég ætlaði að segja frá áramótunum "næst" þegar ég myndi blogga svo ég skal segja frá þeim.
Við íslendingarnir fórum saman eftir vinnu á stað þar sem við vorum með pantað borð og fengum okkur að éta. Við rákum reyndar einn íslendinginn í burtu ásamt þjóðverja og einhverjum sem ég man ekki í burtu því þau voru orðin alltof blekuð. Hehe. Maturinn var svo svona hélvíti góður.
Við fórum svo heim og það var partý í íbúðinni minni og Sunnu svona til tilbreytingar. Micro og Harold (sem vinna með okkur) buðu sér í partýið. Ég held nú að þeir hafi verið á einhverju "aðeins" sterkara en áfengi (voru til dæmis að éta sveppi um daginn, næs?) og þeim tókst að brjóta eina flösku og tvö glös. Mjög góður árangur. Hahaha.

Við vorum svo komin fyrir utan Fire & Ice rétt fyrir miðnætti og dísús hvað ég hef sjaldan á ævinni verið jafn hrædd. Fólk var ekkert að skjóta flugeldunum upp í loftið heldur bara í annað fólk. Og mesta sportið var að grýta fólk með hvellettum.

Það var svo alltof mikið af fólki allsstaðar og við vorum komin heim um kl.2. Svo var ræs svona skemmtilega kl.7 daginn eftir.


Hanna Rós og Atli með blys á áramótunum

Annars er allt bara fína að frétta. Ég, Sunna, Helga, Ágúst og Gummi fórum til Imst á þriðjudaginn því við vorum öll saman í fríi. Þetta voru svona 80min með rútu. Við skelltum okkur þar í Mall-ið og ég keypti mér hlaupaskó á 20€ og strigaskó á eitthvað svipað. Svo keyptum við sunna skærbleika mottu og eitthvað drasl. Leiðin heim var svo eitthvað það fyndnasta sem ég hef á ævinni minni lent í. Gummi keypti bláa kæligrímu og var með skíðagrímu og bleiku húfuna sína og ber að ofan og labbaði um alla rútuna og spurði fólk hvort það væri nú ekki alveg örugglega allt í lagi hjá þeim og svona.

Við lágum sko öskrandi úr hlátri aftast í rútunni. Svo var hann alltaf að spurja fólk hvort það væri nokkuð hrætt, því þá mætti það nú alveg sitja á löbbinni hjá honum og hann myndi hugga það. Hahahahaha.


Gummi agalega svalur sko :)

En annars nenni ég ekkert að blogga. Hahahaha. Ég hlýt að geta komið með eitthvað almennilegt bráðlega. Hehe. En þangað til þá, þá vil ég koma því á framfæri að það hafa orðið anskoti miklar breytingar í mínu lífi, eins og til dæmis þá er ég :
  • Hætt að drekka þangað til 8. febrúar
  • Byrjuð í ræktinni
  • Hætt að éta nammi
  • Ávextir og jógúrt á hverjum degi
  • Aldrei aftur á diskinn - einn diskur er nóg handa mér haha
Anna Lóa sem líður svoooo vel eftir rækina í dag :) og ilmar svona helvíti vel eftir bita-harðfiskinn sem hún er að éta:)

Second of ChristmasAnna Lóa Svansdóttir

Hæhæ. Ég ætlaði bara að segja að ég lét óvart vitlaust e-mail hérna á síðuna, haha. Svo ef einhver hefur hunskast til að senda mér póst þá fór hann ekki til mín :) ..en rétt er :

als1986@gmail.com


Annars er allt að besta að frétta af mér. Ég og Sunnan mín lögðum okkur eftir vinnu og vöknuðum svo og fengum okkur súpu og brauð. Hljómar fátækislega en mjög góð súpa.
Það var ágætlega mikið að gera í vinnunni í dag en samt ekki. Herr Hanser kom samt og hjálpaði mér í súpunum, sem var reyndar mjög fyndið. Við unnum svona vel saman, ég setti ógeðslega lifrakúlur (leiberknúdel) í skál og hann setti súpu yfir. Hahahaha. Gott team, ég og alpakónungurinn.
Ísidor kom til mín í morgun geðveikt alvarlegur og sagði mér að konan sín ætlaði að fara frá honum eftir 25 ára samband og hann var geggjað sorry og þvílikt að útskýra þetta fyrir mér. Eftir hádegi ákvað ég svo að spurja hann hvað hann ætlaði nú að gera varðandi konuna og þá sagði hann að þetta hafi bara verið djók. Ég er ekki alveg að fatta þetta djók hans.

Mér langar að kíkja út í kvöld, en ég held að enginn sé game. Sem er glatað. Maður verður að fara eitthvað út á öðrum í jólum. Annað gengur nú ekki. Ætla að fara og banka hjá öllum á eftir, haha. Stelpurnar fóru reyndar út í gærkvöldi og enduðu svona haugafullar. Þannig að þær eru mjög ólíklega game í kvöld, en sakar ekki að reyna. Svo er frí hjá mér á fimmtudaginn. Ætla rétt að vona að ég þurfi ekki að eyða frídeginum að fara til læknis, þar sem hann Matthias sagði að ef hendurnar á mér skána ekki á morgun þá verð ég að fara til læknis. Gat skeð.

Anna Lóa sem er búin að leggja sig tvo daga í röð =)

JóladagurAnna Lóa Svansdóttir

Hæhæ. Ég held að ég sé orðin alltof öflug í blogginu. Hehe. Þetta gengur ekki sko Glottandi

Allavegna þá var aðfangadagur í gær svona einsog vonandi lang flestir vita, hehe. Og við vorum að vinna, jei. Það var þvílika draman í vinnunni, sem ég nenni nú ekki að segja frá, en það er vonandi over núna. Og svo áttum við að fá eitthvað voða fínt í matinn í hádeginu í gær og það var svona skemmtilegt djúpsteikt Gordon Bleu og franskar. Geðveikt jólalegt. Svo var eins og ég hef sagt ekkert jólaskraut í öllu Giggijoch húsinu og þar sem ég er að vinna er ekki spiluð tónlist svo eina það sem var jólalegt var þegar einn kúnninn kom með jólahúfu á hausnum. Maður batt svo voða vonir um að það myndi snjóa en eini snjórinn sem ég fékk á mig var sá sem kom á skrilljón kílómetra hraða út úr snjóvélunum.

Við stelpurnar drífum okkur svo bara beint heim úr vinnunni og það var bara rokið í sturtu og hent sér í jólafötin. Það var reyndar geðveikt gaman að sjá okkur allar svona rosa fínar og sætar
Brosandi ..þá kom svona smá stemning í mann. Við vorum svo mættar á Restaurant Dominic kl.18.30 en fengum ekki matinn okkar fyrr en kl.20. Hehe. Sem var svosem allt í lagi því við sátum bara og spjölluðum. Svo fengum við matinn og þetta var einhver 6 rétta matseðill og við vorum þarna í fjóra og hálfan tíma. Það var svo yndislegt. Geðveikur maturinn.

Hanna Rós og Ragna


Júlía og Ása


Sunna mín og ég :)

Við vorum svo komnar heim um kl.23 og þá fórum við aðeins yfir til Húsvíkinganna sem voru búnir að éta Tortillini og rusl í matinn. Og orðin frekar ölvuð með frönsku stelpunum sem hanga soldið með okkur og Michael sem vinnur í eldhúsinu með okkur. Mér finnst eitthvað svo rangt við það að drekka sig fullan á aðfangadag. Ekkert að því að kíkja aðeins út og dansa aðeins en eitthva svo rangt að verða ölvaður. Ég var svo hjá þeim í svona einn og hálfan tíma og fór bara heim þegar þau fóru út. Langaði samt pínu aðeins út að tjútta, hehe. En ákvað að fara bara heim. Fór aðeins á netið og opnaði svo pakkana mína. Jei. Fékk nýju bókina frá Dan Brown og Arnald, ÁMS diskinn og nýja Damien Rice diskinn, íslenskt nammi, húfu, tvo treffla, mynd af Palla og Pjésaling, og veski. Takk fyrir mig Koss ..ég var svo áður búin að fá gönguskó frá mömmu, vefmyndavél frá pabba, tölvutösku frá ömmu og hangover uppskriftir frá Freyju minni.

Fallega jólatréið okkar sem reyndist svo vera alvöru:) ..myndin óvart á hlið, hehe

Það var svo fyndið þegar ég vaknaði í gær þá fann ég einhverju geðveika jólalykt og skildi ekkert í neinu. Fór svo og þefaði af jólatrénu, horfði á Sunnu og sagði : Sunna, er þetta alvöru jólatré. Hahaha. Það vissum við ekki að við hefðum keypt alvöru tré. En það er bara gaman svo núna er voða góða jólalykt hjá okkur, víí.

Jóladagur er svo greinilega mun hátíðislegri fyrir austurríkismönnum heldur en aðfangadagur því það voru allir eitthvað svo ánægðir með lífið í dag og allir sögðu Fröhliche Weinhnachten við mann. Carolina sem er yfir Giggijoch labbaði meira segja að öllum og tók í hendina á þeim. Afspyrnu spes sko. Hehe.

Reyndar fékk ég alveg sjokk í dag því Herr Hanser kom þar sem ég er að afgreiða súpurnar og afgreiddi einn mann með súpu og setti dótið sem við seljum í pokum með ofan í súpuna fyrir hann og var eins og lamb í kringum hann. Og sagði mér svo að þetta væri sko Our boss. Þannig að Herr Hanser er greinilega keki hæstur yfir þessu eins og maður hélt. Og hann var víst eins og hrædd kanína í kringum hann í allan dag, hélt á bakkanum fyrir hann og dró örugglega stólinn framm fyrir hann, mwahaha..

Ég afgreiddi svo aftur íslendinga í dag, það var svo fyndið. Ég sagði bara Góðan Daginn og konan horfði á mig og sagði Guten Tag. Og svo eftir svona 3 min kom hún aftur og sagði : bíddu, skiluru íslensku. Hahaha. Ég átti erfitt með mig, langaði svo að hlægja bara að henni. Hihi. Stuttu seinna öskraði Isidor : Anna Lóa og hljóp svona til mín og argaði : Feit lessa!!! Og beinti á einhverja feita konu. Úff hvað ég varð miður mín. Ég bið til Guðs að konan hafi ekki verið íslensk.

Annars var bara ágætt í vinnunni í dag. Það var allt í lagi að gera, en ef þetta er það sem þau kalla mikið að gera þá kvíð ég fyrir janúar þegar það fer að vera lítið að gera. Dísús.
En annars ætla ég bara upp í rúm að lesa Dan Brown bókina mína, víí.

Anna Lóa sem væri svoooo til í að fara á MIB á morgun, Basshunter á laugardaginn og svo Pál Óskar á sunnudaginn á Íslandi :)

Þorlákur, einmittAnna Lóa Svansdóttir

Hæhæ.

Þetta er einhver undarlegasta þorláksmessa sem ég hef upplifað. Vaknaði kl.6.50 og henti mér í sturtu. Var svo kominn í kláfinn kl.7.45 og í vinnugallann og byrjuð að vinna 8.15. Var svo að vinna til kl.17 og þá fengum við okkur að borða upp í fjalli og svo var bara rölt í bæinn og verslað í matinn, því við vitum ekkert hvenær búðin verður opin. Og núna er ég bara að hangsa og ætla líklegast snemma að sofa. Það er ekkert jólalegt, þó að ég og Sunna fjárfestum í einu stykki jólatré um daginn og hún er búin að klippa jólapappír og líma um alla veggi.

Það eru örfáar seríur úti og stundum spiluð jólaleg, en annars er ekkert sem minnir mann á jólin nema dagatalið manns sem segir manni að það sé 23. desemeber. Vírd. Snjórinn í fjallinu er meira segja að hverfa. Giggijoch brekkan er öll í grjóti og þegar við fórum upp með kláfnum þá eru alveg auðar brekkur. Ef snjóvélarnar væru ekki gangi 24/7 þá veit ég ekki hvernig þetta væri.

Annars er bara allt það besta að frétta. Eða svona þannig. Pakkarnir hennar Sunnu eru ekki enn komnir, svo við vitum ekkert hvort hún eigi eftir að eiga einhverja pakka. Mamma hennar sendi á sama tíma og Palli, en samt er pakkinn frá Palla löngu kominn.

Við fengum svo netið í gær, sem var mjög undarlegt því fyrir þrem dögum sögðu þeir að þetta væri vika til tíu dagar. Og það leið varla tveir dagar. Varð reyndar frekar smeyk í gær þegar Björn kom og sagði mér að fara strax niður á skrifstofuna til Herr Hanser því hann þyrfti að tala við mig. En svo var þetta bara varðandi netið, karlarnir voru að biðja um leyfi til að fara inn í herbergið okkar og redda þessu. Svo núna erum við komnar með netið og með því 30cm (ef hún er svo löng) netsnúru og einhverjar sjónvarpsstöðvar, en ekkert sjónvarp.

Ég stóð mig svo vel í vinnunni í dag, náði að tala 4 tungumál við kúnnana. Sem sagt þýsku, ensku, dönsku og svo íslensku. Vá hvað það var gott að geta talað íslensku. Vita alveg hvað maður var að segja og geta útskýrt almennilega hvernig matur þetta væri og að það væri sko hægt að fá kinder portion. Og svo var ég enn stoltari af mér þegar ég gat þýtt það sem íslendingarnir sögðu fyrir þýsku stelpuna sem skilur ekki boffs í ensku.

Ég ákvað samt að fara og segja Isidor að hann mætti ekki tala íslensku í dag því fólkið gæti móðgast svona sérstaklega eftir að ég er búin að komast að hvað hann kann að segja mikið. Hann er síkallandi : homma dvergur, flottur rass, greddu svín og auðvitað asni. Svo finnst honum voða gaman að segja bolla. Fiskibolla, kartöfller bolla og svo segir hann mjög oft fullari. Þá á held ég að vera fullur. Hahahaha. Hann er svo mikið yndi. Ég er búin að kenna honum að segja Sunna Sæta og svo subba. Það er nefnilega agalegt hvað ég er mikil brussa eitthvað, ég er alltaf öll útötuð í gúllassúpu og einhverju öðru rétt eftir hádegi.

Við stelpurnar 6 sem vorum saman í MA ætlum út að borða á morgun á einhverju hóteli. Þetta er einhver 7 rétta matseðill sem verður vonandi mjög góður. Maturinn byrjar kl.19 sem er sem sagt kl.18 á íslenskum tíma þannig að við byrjum jólamatinn alveg á réttum tíma. Veit ekki alveg hvað við gerum svo, ætlum kannski að hittast einhversstaðar og opna pakkana. Ég og Sunna ætlum allavegna að taka jólatréið okkar upp í kvöld, vííí. Þetta er alveg 40 cm stórt gervijólatré. Agalegt krúttilegt sko.

Getur maður farið í verkfall við húðina á sér? Ég er sko alvarlega að spá í því. Síðan ég kom hingað þá hefur húðin á mér orðið svo skelfileg. Greinilega ekki að höndla eitthvað. Er ekki viss hvað það er. Hanskarnir sem ég er að vinna í, fötin sem ég þarf að vera í eða bara loftið. Svo var ég að fá skemmtilega bólu, viljiði vita hvar??? Á augað takk fyrir pent. Úff ég var sko brjáluð.

Ég er farin að fá bakverki eftir að hafa setið við tölvuna í geng útaf þessir mínípíní snúru svo ég er að spá í að fara að gera eitthvað. Sunna er sofnuð upp í rúmi. Ætla að reyna að vekja hana ekki, hún er svo friðsæl eitthvað.

Þangað til næst
Gleðileg Jól elskurnar mínar
Væri svo til í að vera hjá ykkur :)
En samt vil ég ekki fara, hehe
Takk fyrir jólagjafirnar Palli og famílía :*

Á skíðum skemmti ég mérAnna Lóa Svansdóttir

Halló elskurnar mínar.

Ég veit að ég er alveg að missa mig í blogginu, haha. En ég ákvað að skella mér bara í dag þar sem ég býst ekkert við því að fara aftur fyrr en við erum komnar með netið. Sem á að gerast eftir viku núna, þar sem við erum búnar að sækja um það. Ýkt duglegar.

Við vorum í fríi í dag og ákváðum að fara bara snemma að sofa í gær. Ég var sofnuð kl.22 þó að það hefði verið nuðað í mér að koma á djammið. Hehe, voða stollt af mér sko. En við vorum svo komnar út úr húsinu bara um níu um morguninn og búnar að leigja okkur skíði og komnar upp í fjall klukkutíma seinna.

Svo var bara að koma sér í lyfturnar. Ég fékk að ráða svo ég valdi minni lyftuna, hélt ég. En nei nei, lyftan hélt alltaf lengra og lengra upp í fjallið. Hahahaha. Svo þegar við vorum komnar upp þá var komið að því að skella sér niður. Þá komst ég að því að ég kann bara helvíti vel ennþá á skíði en sama var ekki um Sunnuna mína. Ég sko gat ekki andað því ég hló svo mikið af henni þegar hún ákvað að sleppa því að vera í plóg og fauk svona af stað niður brekkuna og endaði svo með því að henda sér bara í jörðina og rann einhverja 10m niður. Og ég geggjað góð og hló bara að henni.

Þegar við loxins komum okkur niður brekkuna þá vildi ég alveg æst fara aftur en Sunna sagði mér bara að fara einni. Hahahaha. Þannig að ég skellti mér aðra ferð og stökk meira segja á einhverri hæð sem ég fann. Hahahaha. Voða fjör sko.

Svo ákváðum við bara að fara að skoða og þurftum að taka 5 lyftur í viðbót og renna okkur niður eina brekku og fara í gegnum göng í gegnum fjallið til að komast þangað sem við vildum.


Skíðagöngin og einhver rosa gella :)

Það var svo sjúklega flott á leiðinni. Við ákváðum svo að labba upp að einhverjum útsýnispalli sem er í 3367m hæð og vá hvað ég hélt að ég myndi deyja. Það var svo erfitt að anda og manni sveið í lungun. Það er ekkert grín að labba upp rosa brekku í svona þunnu lofti og á einhverjum leiðindar skíðaklossum. En það var samt svooooo geðveikt þarna uppi. Ég reyndar flaug svo geðveikt á hausinn þegar við vorum að labba niður og ég var að renna mér á klossunum. Hahahaha.


Ég og Sunna í 3367 m hæð

Svo renndum við okkur niður einhverja voða krúttilega brekku og þegar við vorum komnar niður, þá föttuðum við að við vissum ekkert hvernig við ættum að koma okkur tilbaka. En með löngum göngutúr með skíðin á bakinu þá komumst við heilar á húfi tilbaka.

Reyndar var agalegt að komast úr einni lyftunni því við vorum alltof seinar og ég þurfti að hoppa niður úr henni, en skíðastafurinn hennar Sunnu festist í skíðunum mínum svo hún komst næstum ekki út úr henni. Þurfti að henda sér niður í lyftunni og flaug á hausinn.

Ég skildi Sunnu greyið svo bara upp í fjalli og skellti mér niður brekkurnar og það var svo geðveikt. Við héldum okkur reyndar alltaf í bláum brekkum sem eru auðveldustu brekkurnar en í eitt skiptið þá fór Sunna með kláf niður en ég ákvað á renna mér niður rauða brekku sem átti að vera svona medium. Ég hélt á tímabili að ég myndi nú barasta deyja. En það var samt eiginlega skemmtilegra í þeirri brekku, miklu fleiri hólar og brattari.



Svo átti ég svo eftir að hlægja meira af Sunnu. Hahahaha. Þegar við vorum að fara í kláfinn sem fer með okkur niður í bæ, þá missti Sunna svona skíðin sín í sundur en reddaði sér alveg og þá sprakk sko lyftuvörðurinn úr hlátri og þá gat ég ekki annað en hlegið að henni. Reyndar fékk Sunna alveg að hlægja af mér þegar við vorum að labba með skíðin þá barði ég þau næstum í hausinn á einhverjum gaur. Úps.

Við fórum svo inn á Giggijoch að spjalla við krakkana. Og komumst að því að Ágúst greyið, strákur frá Húsavík, handleggsbraut sig í dag. Svo ég veit ekki alveg hvað hann ætlar að gera. Ekki alveg hægt að vinna þessa vinnu með aðeins eina hönd. Svo var víst eitthvað kvartað yfir hávaða í gærkvöldi/nótt. En ég veit ekkert um það, tók ekkert eftir því. Svaf bara eins og grjót, hehe :)

Svo er vinna á morgun og alveg framm að aðfangadag. Veit ekki með næstu viku. Veit það á sunnudaginn. Við krakkarnir ætlum að fara eitthvað fínt út að borða bara á aðfangadag.

En ég er rokin, tjússs.

Kveðja Anna Lóa sem var með eldrauðar kinnar og nef í dag og varaþurrk niður á enni :)

Sölden er greinilega staðurinn :)

Síða 1 af 8

Teljari

Auglýsing

Könnun

Hvernig blogg finnst þér skemmtilegast?